Þessi skrifa Áramótaskaupið í ár

Dóra Jóhannsdóttir, Friðgeir Einarsson, Sigurjón Kjartansson, Vigdís Hafliðadóttir, Saga Garðarsdóttir …
Dóra Jóhannsdóttir, Friðgeir Einarsson, Sigurjón Kjartansson, Vigdís Hafliðadóttir, Saga Garðarsdóttir og Jóhann Kristófer Stefánsson eru höfundar Áramótaskaupsins 2022. Ljósmynd/Ragnar Visage

Saga Garðarsdóttir leikkona er yfirhöfundur Áramótaskaupsins 2022. Meðhöfundar hennar eru Friðgeir Einarsson, Vigdís Hafliðadóttir og Jóhann Kristófer Stefánsson. Dóra Jóhannsdóttir mun leikstýra skaupinu en hún leiddi höfundahóp skaupsins árið 2017 og 2019. 

Hópurinn hóf skrifin fyrr í sumar. 

Framleiðandi og meðhöfundur er hinn gamalreyndi Tvíhöfði og fyrrum Fóstbróðir, Sigurjón Kjartansson. Nýstofnað framleiðslufyrirtæki Sigurjóns, S800, framleiðir Skaupið sem er fyrsta verkefni fyrirtækisins.

Saga er ekki einasta einn eftirsóttasti uppistandari þjóðarinnar heldur hefur hún einnig leikið í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta. Þá er hún afkastamikill handritshöfundur og var ein af höfundum Skaupsins árin 2013 og 2017.

Friðgeir er leikari, rithöfundur og leikskáld sem hefur bæði einn síns liðs og með hinum annálaða KRIÐPLEIR hóp skrifað og leikið í fjölda verka fyrir leiksvið og Útvarpsleikhúsið.

Vigdís Hafliðadóttir er einna kunnust sem söngkona hljómsveitarinnar Flott. Hún hefur einnig getið sér gott orð sem uppistandari, m.a. sem hluti af VHS-hópnum. Hún söng einmitt lokalag Skaupsins í fyrra ásamt Unnsteini Manúel.

Jóhann Kristófer hefur komið víða við á stuttum en fjölbreyttum ferli. Hann leikstýrði og skrifaði hina vinsælu sjónvarpsþætti ÆÐI og hefur einnig getið sér gott orð í tónlistundir listamannsnafninu Joey Christ og í samstarfi við aðra listamenn á borð við Sturla Atlas.

„Við viljum að þetta verði fyndið fyrir alla, hvort sem þú dýrkar Rás 1 eða dáir TikTok,“ segir Dóra. „Við hættum ekki að skrifa brandara fyrr en við erum þess fullviss að allir eigi eftir að hlæja a.m.k. átta sinnum og þar af einu sinni mjög hátt.“

Dóra vill eins og gefur að skilja lítið gefa upp um hvernig gengur og hvað verður tekið fyrir: „Sigurjón á að leika verðbólgudrauginn. Annað er leyndó!“

Skarphéðinn Guðmundsson dagskrárstjóri sjónvarps hjá RÚV segist bíða afar spenntur eftir að sjá afraksturinn og upp á hverju þessi fyndni og föngulegi grínflokkur tekur.

„Það er alltaf alveg sérstaklega spennandi og eftirsóknarvert að gefa nýju hæfileikafólki tækifæri til að stýra Skaupinu í samvinnu við annálaða reynslubolta. Teymið í ár samanstendur einmitt af slíkri blöndu, handritshöfundum með ólíkan bakgrunn sem eiga það sameiginlegt að hafa einstakt lag á að koma auga á eitthvað alveg drepfyndið í kringum okkur og setja það í hárbeitt, aðkallandi og óvænt samhengi.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nefndu hlutina bara réttu nafni, það þjónar engum tilgangi að vefja allt í bómull. Þú færð ótrúlega góðar fréttir næstu daga.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Ragnheiður Gestsdóttir
3
Camilla Läckberg
5
Hugrún Björnsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nefndu hlutina bara réttu nafni, það þjónar engum tilgangi að vefja allt í bómull. Þú færð ótrúlega góðar fréttir næstu daga.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Ragnheiður Gestsdóttir
3
Camilla Läckberg
5
Hugrún Björnsdóttir