Leikkonan og grínistinn Birna Rún Eiríksdóttir hefur slegið rækilega í gegn á samfélagsmiðlinum TikTok að undanförnu. Á miðlinum er hún dugleg að deila bráðfyndnum sketsum með fylgjendum sínum þar sem hún tekur á málefnum líðandi stunda á spaugilegan máta.
Á dögunum deildi Birna fyndnu myndskeiði þar sem hún bregður sér í hlutverk ömmu sinnar, en myndbandið er nokkurskonar ádeila um stöðluð kynjahlutverk innan heimilisins. Í sketsinum leikur Birna samtal á milli sín og ömmu sinnar.
Í myndbandinu vísar Birna í þriðju vaktina, þar sem hún sinnir vinnu, börnunum og heimilinu á meðan amman dásamar „grey“ eiginmanninn fyrir að ætla að sækja eitt barnanna á æfingu eftir að hafa verið að vinna allan daginn, rétt eins og Birna hafði gert.
Myndbandið má sjá í heild sinni hér að neðan.
@birnaruneiriks93 Ebbi greyið, hann er mjög duglegur í alvöru. En ég vinn sem sagt líka.
♬ Chopin Nocturne No. 2 Piano Mono - moshimo sound design