Karl III Bretakonungur var pirraður yfir penna sem lak þegar hann var að skrifa nafn sitt í gestabók í Hillsborough-kastala í grennd við Belfast í Norður-Írlandi í gær. Þetta er í annað sinn á nokkrum dögum sem hann pirrar sig á pennum.
„Ó, Guð ég hata þennan [penna],“ sagði Karl um leið og hann stóð upp og rétti eiginkonu sinni Kamillu drottningu pennann. „Ó sjáðu, þetta fer út um allt,“ svaraði Kamilla.
„Ég þoli ekki þennan andskotans hlut, í hvert einasta sinn,“ sagði Karl þegar hann gekk í burtu. Myndbandið hefur notið mikillar athygli á samfélagsmiðlum og hefur Karl verið gagnrýndur fyrir að skipta skapi yfir penna.
Í fyrra skiptið sem Karl pirraði sig á pennum var á laugardag þegar hann var að skrifa undir eið, og of margir pennar voru á borðinu. Bað hann aðstoðarmann sinn um að taka pennana af borðinu svo hann hefði nóg pláss til að klára að skrifa undir skjölin.