Margrét Þórhildur Danadrottning greindist með kórónuveiruna í gærkvöldi. Hún dvelur nú í Fredensborgarkastala. Þetta kemur fram í tilkynningu frá höllinni. Drottningin var viðstödd útför Elísabetar II. Bretadrottningar á mánudag, ásamt fjölda annarra.
Sonur hennar, Friðrik krónprins, og eiginkona hans María krónprinsessa munu stíga inn fyrir hana á helstu viðburðum vikunnar á meðan hún hvílir sig.