Nú hafa alls fimm konur stigið fram og opnað sig um óviðeigandi hegðun gifta söngvarans Adam Levine. Eiginkona hans til átta ára, Victoria's Secret-fyrirsætan Behati Prinsloo er í miklu uppnámi vegna ásakanna, en hún er ófrísk að þriðja barni þeirra.
Fyrrum jógakennari söngvarans, Alanna Zabel, segir Levine hafa verið afar óviðeigandi við hana og hafi meðal annars sent henni skilaboð um að vilja eyða deginum með henni nakinni.
Hún er fjórða konan sem sakar Levine um óviðeigandi hegðun, en samkvæmt heimildum Page Six vann hún fyrir hann á árunum 2007 til 2010.
Fimmta konan sem hefur stigið fram er fyrirsætan Ashley Russell, en hún heldur úti líkamsræktarreikning á Instagram með rúmlega fjögur þúsund fylgjendum.
Hún segir Levine hafa verið duglegan að líka við myndir hennar og senda henni skilaboð fyrr á árinu, og hafi á tímabili sent henni skilaboð nánast daglega eftir klukkan tíu á kvöldin. „Hann líkaði aðallega við myndir af rassinum mínum,“ sagði fyrirsætan í samtali við Daily Mail.