Vertu úlfur í hundraðasta sinn

Úr sýningunni Vertu úlfur í Þjóðleikhúsinu.
Úr sýningunni Vertu úlfur í Þjóðleikhúsinu. Ljósmynd/Aðsend

Leikritið Vertu úlfur verður sýnt í 100. sinn í kvöld á Stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu og af því tilefni var allur ágóði af sölu á vínilplötu með tónlist úr sýningunni afhentur Geðhjálp. Eitt eintak er nú eftir af plötunni og verður það selt á uppboði innan skamms. 

Einungis voru framleidd 39 eintök af plötunni sem var seld í framhaldi vitundarvakningar Geðhjálpar og Píeta samtakanna sem bar heitið 39 og vísaði í meðaltalsfjölda þeirra karlmanna á Íslandi sem svipta sig lífi árlega. Á plötunni eru tvö lög úr sýningunni, annars vegar titillag eftir Emilíönu Torrini og Markétu Irglova og hins vegar lagið Kötturinn vill inn, Svavar Pétur Eysteinsson, eða Prins Póló, samdi við sama texta. 

„Sýningin Vertu úlfur hefur hreyft rækilega við áhorfendum og nú verið sýnd fyrir fullu húsi tvö leikár í röð.   Afar fátítt er að sýningin sé sýnd yfir 100. sinnum á Stóra sviðinu og aldrei hefur það gerst áður að sýning af því tagi sem Vertu úlfur er, sé sýnd svo oft. Sýningin hlaut sjö Grímuverðlaun: Sýning ársins, leikrit ársins, leikstjóri ársins, leikari ársins í aðalhlutverki, leikmynd ársins, lýsing ársins og hljóðmynd ársins. Titillag sýningarinnar hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin í opnum flokki.  Fyrir ári var haldið málþing um sýninguna og málaflokkinn, sýningin er nú lesin í fjölda framhaldsskóla og í efstu bekkjum grunnskóla og óhætt er að segja að sýningin hafi vakið rækilega athygli á þessum málaflokki,“ segir í tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu.  

Unnur Ösp Stefánsdóttir skrifaði leikgerðina upp úr samnefndri bók Héðins Unnsteinssonar og leikstýrir sýningunni en Björn Thors fer með eina hlutverkið í því. 

Í einleiknum er farið í ferðalag um hættulega staði hugans inn í veröld stjórnleysis og örvæntingar og aftur til baka, eins og því er lýst í tilkynningunni og veitt innsýn í baráttu manns sem tekst að brjótast út úr vítahringnum og nær að snúa sinni skelfilegustu reynslu upp í þann styrk sem þarf til að breyta öllu kerfinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Tafir, ruglingur og samskiptaörðugleikar í vinnunni munu setja svip sinn á þennan mánuð. En aðrir sjá ekki öll mál í sama ljósi og þá er það þolinmæðin sem gildir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Tafir, ruglingur og samskiptaörðugleikar í vinnunni munu setja svip sinn á þennan mánuð. En aðrir sjá ekki öll mál í sama ljósi og þá er það þolinmæðin sem gildir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar