Greint var frá því í morgun að tafir yrðu á umferð í Ártúnsbrekku til klukkan 13 í dag vegna þess að þar færu fram kvikmyndatökur.
Verið er að taka upp efni fyrir þættina Aftureldingu, samkvæmt upplýsingum mbl.is.
Þættirnir Afturelding eru leiknir sjónvarpsþættir um eldri handboltakempu sem hefur verið í óreglu undanfarin ár en fær svo það hlutverk að þjálfa kvennalið Aftureldingar. Þættirnir eru hugarfóstur Halldórs Laxness Halldórssonar og Hafsteins Gunnar Sigurðssonar.
Stikla fyrir þættina var frumsýnd árið 2019:
Fyrirhugað er að þættirnir verði sýndir á Ríkissjónvarpinu næstu páska. ZikZak framleiðir þættina.
Með aðalhlutverk fara Ingvar E. Sigurðsson, Svandís Dóra Einarsdóttir, Saga Garðarsdóttir, Vala Kristín Eiríksdóttir og Sverrir Þór Sverrisson að því er fram kemur í fréttum um þættina frá því í mars 2019, en þá var verkefnið í fjármögnunarferli.