Bandaríski spjallþáttastjórnandinn Jay Leno er nú á sjúkrahúsi vegna alvarlegra brunasára sem hann hlaut á andliti.
TMZ greinir frá því að Leno hafi verið í bílskúr sínum á sunnudag þegar kviknaði í einum af bílum hans án fyrirvara.
Heimildir miðilsins herma að Leno hafi hlotið brunasár á vinstri hlið andlitsins. Óvíst er hvert ástand hans er nú.