Laddi fær þriðja hjartasteininn

„Þetta er bara eins og í Hollywood, þetta er ekkert …
„Þetta er bara eins og í Hollywood, þetta er ekkert öðruvísi. Hafnarfjörður er bara orðinn eins og Hollywood,“ gantaðist Laddi en hann er fæddur og uppalinn í bænum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Leikarinn og skemmtikrafturinn Laddi var í kvöld sæmdur þeim heiðri að vera hinn nýjasti hjartasteinn Hafnarfjarðarbæjar, sem afhjúpaður var núna rétt í þessu.

Bætist Laddi því í hóp tveggja annarra hjartasteina, sem þau Björgvin Halldórsson og Guðrún Helgadóttir heitin höfðu áður verið sæmd. Steinarnir þrír eru við innganginn að Bæjarbíói, einum helsta samkomustað bæjarins.

Hafnarfjörður eins og Hollywood

„Þetta er rosalega skemmtilegt  og mikill heiður,“ sagði Laddi þegar mbl.is náði tali af kappanum. „Bara glæsilegt.“

„Þetta er bara eins og í Hollywood, þetta er ekkert öðruvísi. Hafnarfjörður er bara orðinn eins og Hollywood,“ gantaðist Laddi en hann er fæddur og uppalinn í bænum.

Fyrsti hjartasteinninn var afhjúpaður í fyrra en forsagan er þó lengri, þar sem upphaflega, sumarið 2019, var um að ræða stjörnur sem svipa til þeirra sem prýða Frægðargötuna í Hollywood (e. Walk of Fame).

Endaði það með því að bænum var gert að fjarlægja stjörnuna af viðskiptaráðinu í Hollywood og bærinn bjó til nýja hönnun: Hjartasteininn.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það getur verið erfitt að losna úr vítahring aukavinnu og eyðslu. En það er hægt. Taktu þér hlé og skipuleggðu málin upp á nýtt frá a til ö.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Sigrún Elíasdóttir
3
Ragnheiður Gestsdóttir
4
Camilla Läckberg
5
Colleen Hoover
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það getur verið erfitt að losna úr vítahring aukavinnu og eyðslu. En það er hægt. Taktu þér hlé og skipuleggðu málin upp á nýtt frá a til ö.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Sigrún Elíasdóttir
3
Ragnheiður Gestsdóttir
4
Camilla Läckberg
5
Colleen Hoover