Ekið á stjörnuköttinn Diegó

Kötturinn Diegó á sér marga aðdáendur. Þeirra á meðal er …
Kötturinn Diegó á sér marga aðdáendur. Þeirra á meðal er Páll Óskar Hjálmtýsson. Samsett mynd

Aðdáendur kattarins Diegó bíða nú milli vonar og ótta eftir að keyrt var á hann. Diegó er sennilega með vinsælustu köttum landsins en rúmlega 9 þúsund manns eru í hópnum Spottaði Diegó á Facebook.

Samkvæmt upplýsingum er fram koma í hópnum ók bifreið á Diegó í morgun og slasaðist hann talsvert. Var farið með hann á dýraspítala í kjölfarið. 

Diegó hefur vanið komu sína í Hagkaup í Skeifunni og kannast vegfarendur í Skeifunni margir hverjir við hann. Þá birtast reglulega myndir og myndbönd af honum í hópnum. Nú hrannast inn batakveðjur til kattarins knáa sem sannarlega á sér marga aðdáendur.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Láttu það ekki setja þig úr jafnvægi, þótt eitt og annað gangi á í kring um þig. Mundu að horfa á það jákvæða í lífinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Ragnheiður Gestsdóttir
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Láttu það ekki setja þig úr jafnvægi, þótt eitt og annað gangi á í kring um þig. Mundu að horfa á það jákvæða í lífinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Ragnheiður Gestsdóttir
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup