Marvel-stjarnan Simu Liu opinberaði ástarsamband sitt nýverið á rauða dreglinum. Sú heppna heitir Allison Hsu, en þau mættu saman á frumsýningu kvikmyndarinnar Violent Night í Los Angeles þar sem þau skörtuðu skemmtilegum jólapeysum.
Leikarinn deildi mynd af þeim á Instagram-reikningi sínum og hamingjuóskirnar hrönnuðust inn, en tveimur vikum áður hafði Hsu deilt mynd af þeim á Blackpink tónleikum.
Liu var áður í tygjum við leikkonuna Jade Bender, en þau birtust saman á rauða dreglinum í júlí síðastliðnum. Tveimur mánuðum síðar sagðist hann þó vera einhleypur, en nú virðist hann hafa fundið ástina á ný.