Áhrifavaldurinn og hlaðvarpsstjórnandinn Edda Falak fylgdi tískustraumnum og lét gervigreindarappið Lensa teikna upp nokkrar myndir af sér. Gervigreindin fór þó ekki vel með myndir Eddu eins og sjá má af þeim myndum sem hún birti á Instagram.
„Þá er maður bara ógeð,“ skrifar Edda undir myndaseríuna frá Lensa.
Appið Lensa hefur notið mikilla vinsælda í vikunni og annar hver maður látið forritið teikna upp myndir af sér. Það fá þó ekki allir jafn glæsilegar myndir eins og Edda komst að.