Evrópsku kvikmyndaverðlaunin verða afhent í Eldborg í Hörpu í kvöld og eru gestir farnir að streyma í húsið. Vegna kulda fer móttakan fram innanhúss og streymi hafið frá dreglinum á vef verðlaunanna.
Fimm kvikmyndir eru tilnefndar í flokki bestu evrópsku kvikmyndarinnar en þær eru Alcarrás, Close, Corsage, Holy Spider og Triangle of Sandess. Í flokki heimildarmynda eru það A House Made of Splinters, Girl Gang, Mariupolis 2, The Balcony Movie og The March on Rome.
Tilnefndir leikstjórar eru Lukas Dhont, Marie Kreutzer, Jerzy Skolimowski, Ali Abbasi, Alice Diop og Ruben Östlund. Tilnefndar leikkonur eru Vicky Krieps, Zar Amir Ebrahimi, Léa Seydoux, Penélope Cruz og Meltem Kaptan. Tilnefndir leikarar eru Paul Mescal, Elliott Crosset Hove, Pierfrancesco Favino og Zlatko Buricc.
Í flokki handritshöfunda eru tilnefnd Carla Simón og Arnau Vilaró, Kenneth Branagh, Lukas Dhont og Angelo Tijssens, Ali Abbasi og Afshin Kamran Bahrami og Ruben Östlund. Í flokki sem nefnist Evrópsk uppgötvun og er á vegum alþjóðasamtaka kvikmyndagagnrýnenda, FIPRESCI, eru tilnefndar myndir sem eru fyrsta kvikmynd leikstjóra í fullri lengd og má sjá þær og fleiri á vef EFA, europeanfilmawards.eu.
Kvikmynd Hannesar Þórs Halldórssonar, Leynilögga, er tilnefnd sem besta gamanmyndin.
Ilmur Kristjánsdóttir og Haugleikur Dagsson eru kynnar á hátíðinni. Sýnt verður frá verðlaununum í beinni útsendingu á RÚV og hefst útsending kl. 19.15.
Hér má sjá nokkrar myndir sem ljósmyndari Morgunblaðsins tók af gestum við komuna í Hörpu.