Stephen „tWitch“ Boss fannst látinn á hótelherbergi í Los Angeles á þriðjudaginn. Boss var aðeins fertugur að aldri þegar hann lést. Hann var plötusnúður í vinsælum spjallþáttum Ellenar DeGeneres.
Fram kemur á vef TMZ að um sjálfsvíg hafi verið að ræða. Eiginkona hans er sögð hafa hringt á lögreglu þegar hún áttaði sig á því að hann fór af heimili þeirra án þess að fara á bílnum.
Eiginkona hans, Allison Holker Boss, sendi frá sér tilkynningu á vef People. „Ég er viss um að það líði ekki sá dagur sem við heiðrum ekki minningu hans. Ég bið um frið á þessum erfiðum tímum fyrir mig og sérstaklega börnin okkar þrjú,“ skrifaði hún.
Boss byrjaði að koma fram í spjallþáttunum árið 2014 en síðasti þátturinn fór í loftið fyrr á árinu. Hann gerði meira en að spila tónlistina. Árið 2020 var hann framleiðandi þáttanna.
Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent er á hjálparsíma Rauða krossins, 1717. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218.