HBO velur Símann á Íslandi

Síminn og bandaríski sjónvarpsframleiðandinn HBO hafa gert með sér víðtækan …
Síminn og bandaríski sjónvarpsframleiðandinn HBO hafa gert með sér víðtækan samstarfssamning sem tryggir Sjónvarpi Símans aðgang að því nýjasta úr smiðju HBO ásamt fjölda eldri titla.

Síminn og bandaríski sjónvarpsframleiðandinn HBO hafa gert með sér víðtækan samstarfssamning sem tryggir Sjónvarpi Símans aðgang að því nýjasta úr smiðju HBO ásamt fjölda eldri titla. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Símanum.

HBO hefur um langt árabil verið samnefnari fyrir vandað sjónvarpsefni en efni frá þeim hefur hlotið ótal Golden Globe og Emmy tilnefningar og verðlaun. Þættir eins og Game of Thrones, Sex and the City, Chernobyl, The Wire, Curb Your Enthusiasm, Band of Brothers og Mare of Easttown eru dæmi um þætti sem allir koma úr smiðju HBO, þættir sem sjónvarpsaðdáendur um allan heim þekkja.

House of the Dragon, þættir sem gerast í söguheimi Game of Thrones og hafa aldrei verið aðgengilegir á Íslandi áður munu birtast í dag í Sjónvarpi Símans Premium ásamt öllum átta þáttaröðunum af Game of Thrones og strax á nýju ári mun efni frá HBO bætast jafnt og þétt við í hverjum mánuði.

„Við erum afskaplega ánægð að hafa náð samningum við HBO en hið frábæra efni þeirra fellur vel að efnisveitunni okkar Sjónvarpi Símans Premium. Hér er um að ræða gæðaefni fyrir kröfuharða áhorfendur sem mun festa okkur enn betur í sessi sem leiðandi efnisveitu á Íslandi enda höfum við nú samninga við alla bestu framleiðendur heims ásamt því að vera heimili ensku úrvalsdeildarinnar á Íslandi,“ segir Magnús Ragnarsson framkvæmdastjóri Miðla hjá Símanum í tilkynningu.

Fjöldi nýrra þáttaraða eru væntanlegar á nýju ári frá HBO og má þar helst nefna The Last of Us með Pedro Pacal í aðalhlutverki sem byggja á einhverjum þekktustu tölvuleikjum síðari ára og mikil eftirvænting er eftir, White House Plumbers með Woody Harrelson sem fjalla um skipuleggjendur þess sem seinna varð Watergate hneykslið ásamt því að báðar þáttaraðirnar af The White Lotus sem hafa fengið mikið lof gagnrýnenda og áhorfenda vestanhafs munu koma í Sjónvarp Símans.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup