Jeremy Renner alvarlega slasaður

Frá kvikmyndinni The Hurt Locker.
Frá kvikmyndinni The Hurt Locker. HO

Bandaríski leikarinn, Jeremy Renner, liggur nú á spítala eftir að hafa orðið fyrir slysi við snjómokstur í gær. Leikarinn hlaut lífshættulega áverka og er ástand hans metið alvarlegt en stöðugt.

„Fjölskylda hans er með honum og hann er að fá frábæra umönnun,“ segir í tilkynningu frá fulltrúa Renners til fjölmiðla.

Renner er m.a. þekktur fyrir hlutverk sitt sem Hawkeye í Marvel kvikmyndaheiminum en hann hefur auk þess verið tilnefndur tvisvar til Óskarsverðlaunanna, annars vegar fyrir leik sinn í kvikmyndinni The Hurt Locker og hins vegar fyrir hlutverk sitt í The Town.

Þá lék Renner einnig í kvikmyndinni A Little Trip to Heaven sem Baltasar Kormákur leikstýrði.

Jeremy Renner lék stórt hlutverk í A Little Trip to …
Jeremy Renner lék stórt hlutverk í A Little Trip to Heaven. mbl.is/Þorkell Þorkelsson
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup