Snjóbíll fór yfir fótlegg leikarans

Jeremy Renner.
Jeremy Renner. AFP/Phil McCarten

Banda­ríski leik­ar­inn Jeremy Renner missti töluvert af blóði eftir að snjóbíll fór yfir fótlegg hans. 

Snjóbíllinn er í eigu leikarans og hafði hann ekið bifreiðinni í rúmlega 400 metra fjarlægð frá heimili sínu í Nevada í Bandaríkjunum í þeim tilgangi að ryðja snjó af aðliggjandi vegi.

Nágranni Renner kom honum til bjargar og bjó um sárið þar til hann var fluttur með þyrlu til aðhlynningar. Er leikarinn sagður hafa hlotið lífshættulega áverka og er ástand hans metið alvarlegt en stöðugt.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir