Bandaríski leikarinn Kevin Spacey segist saklaus af sjö ákærum vegna kynferðisbrots en hann kom fram fyrir rétti í London í dag í gegnum fjarfundarbúnað.
Samkvæmt dómsskjölum er hann meðal annars sakaður um að snerta þolandann með kynferðislegum hætti yfir fötum hans auk þess sem hann á að hafa þvingað hann til þess að snerta sig utan klæða.
Brotin eiga að hafa átt sér stað árið 2001 og 2004, öll gegn sama manninum.
Spacey hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot bæði í Bandaríkjunum og Bretlandi. Nýlega var máli gegn honum í Bandaríkjunum vísað frá dómi og hann sýknaður af kviðdómi. Þá kom hann fyrir dóm í sumar í Bretlandi vegna ásakana þriggja annarra manna og fara réttarhöldin fram í sumar. Alls eru ákæruliðirnir á hendur honum orðnir samtals tólf.