Coco Austin, fyrirsæta og eiginkona rapparans Ice-T, hefur nú opnað OnlyFans-reikning þar sem hún er byrjuð að framleiða og selja efni.
„Já, ég er á OnlyFans núna ... Þú munt ekki sjá eftir því ...,“ skrifaði Austin við mynd sem hún birti á Instagram á dögunum.
Fyrirsætan, sem er 43 ára, hvatti aðdáendur sína til að fara inn á OnlyFans-síðu sína þar sem notendur geta gerst áskrifendur á efni hennar fyrir tæplega 20 bandaríkjadali á mánuði, sem nemur rúmum 2.800 krónum á gengi dagsins í dag.
Austin tilkynnti fylgjendum sínum að OnlyFans væri ekki „klámsíða“ heldur muni áskrifendur hennar fá aðgang að „kynþokkafullu efni“ sem hún geti ekki birt annars staðar.