Netumferðaröngþveiti varð á vef Senu Live eftir að tilkynnt var um að hljómsvetitin Backstreet Boys væri bæntanleg til landsins í apríl.
Í tilkynningu frá Senu kemur fram að svo mikið álag hafi skapast á vefsíðunni að hún hrundi og unnið sé að því að koma henni aftur í lag.
Vegna þessa getur gengið erfiðlega fyrir aðdáendur að skrá sig á póstlistann til þess að komast á póstlistaforsöluna fyrir tónleikana.
Nóg er að skrá sig á póstlistann fyrir 28. febrúar en póstlisaforsalan hefst 1. mars klukkan 10. Þá hefur að auki verið ákveðið að notast við stafræna biðröð í öllum forsölum og almennri sölu til að vernda kerfi Tix fyrir álagi þegar sala hefst.