Leikarinn Sam Neill hefur greinst með þriðja stigs blóðkrabbamein. Hann segir í endurminningum sínum að hann sé „mögulega að deyja“ af völdum sjúkdómsins sem hann greindist með fyrir ári síðan.
Nýsjálenski leikarinn, sem lék m.a. í Jurassic Park, sagðist hafa byrjað í meðferð í mars í fyrra vegna meinsins.
Neill, sem er 75 ára, greinir frá þessu í bók sinni Did I Ever Tell You This? Sem kemur út í næstu viku.
Í upphafskaflanum, sem hann skrifaði á meðan hann gekkst undir geislameðferð, segist hann hugsanlega vera dauðvona.
Í samtali við The Guardian segist Neill vera að reyna að ná bata og að hann muni halda áfram í geislameðferð það sem eftir er ævinnar.
„Ég get ekki látið eins og þetta ár hefði ekki haft að geyma myrk augnablik,“ sagði hann.
Ferill Neill hófst á áttunda áratugnum. Hann hefur meðal annars leikið í Peaky Blinders, The Hunt For Red October og The Piano.