Rokkhátíðin Eistnaflug mun ekki fara fram í ár. Þetta kemur fram í tilkynningu á samfélagsmiðlum hátíðarinnar.
Í tilkynningu segir að ástæðan afleiðingar kórónuveirufaraldursins.
„Við stefnum samt ótrauð áfram og erum að vinna í að endurnýja hátíðina og gera hana ennþá betri! Þar að auki stefnum við á að halda áfram með tónleikaröðina okkar í Reykjavík, mikið nýtt og spennandi efni að fara gerast þar!“ segir enn fremur í tilkynningunni.
Eistnaflug hóf göngu sína sem eins dags tónlistarveisla árið 2005 og var haldin árlega í Neskaupstað. Hátíðin fór ekki fram vegna faraldursins árin 2020 og 2021, en sneri aftur á síðasta ári.