OnlyFans-fyrirsætan Abigail White, sem dæmd var í 18 ára fangelsi á síðasta ári fyrir morðið á fyrrverandi kærasta sínum og barnsföður, krefst nú að fangelsið þar sem hún afplánar dóm sinn uppfæri reglur sínar svo hún geti stundað kynlíf á meðan hún situr á bak við lás og slá.
White stakk kærasta sinn, Bradley Lewis, í hjartað með eldhúshníf þegar hann reyndi að slíta sambandinu við hana á heimili þeirri í Kingswood á Englandi hinn 25. mars í fyrra.
Hún afplánar nú 18 ára dóm í HMP Eastwood Park-fangelsinu í Gloucestershire og berst fyrir því að fangelsisyfirvöld breyti reglugerðum sínum varðandi umgengisrétt svo hún geti fengið þarfir sínar uppfylltar.
„Það hefur vakið athygli mína eftir að hafa nýlega verið dæmd í 18 ára fangelsi að þau leyfa ekki næturdvöl fyrir kvenfanga og maka þeirra,“ sagði OnlyFans-stjarnan nýlega í samtali við Inside Times. „Þau eiga að taka tillit til okkar þarfa og leyfa körlum og konum að gista saman næturlangt,“ sagði hún ennfremur.
White má sem stendur taka á móti gestum yfir daginn en getur ekki átt nána stund með nýja kærasta sínum þar sem allir gestahittingar eru undir ströngu eftirliti starfsmanna fangelsisins.