Ekki örvænta þótt ekki sé búið að skipuleggja Eurovision-partí í maí. Bíó Paradís býður upp á samáhorf á báðar undankeppnirnar og úrslitakeppnina í stærsta salnum sínum.
Eurovision er þekkt fyrir það að sameina áhorfendur um allan heim og er fátt skemmtilegra en að horfa á keppninni í stórum hópi.
Bíó Paradís ætlar að gera sitt í því og þegar um ræðir jafn stóran viðburð og Eurovision-keppnina sjálfa dugar ekkert minna en salur 1. Frítt verður inn og öll velkomin að deila gleðinni með öðrum.
Til upprifjunar eru dagsetningarnar þessar: