Sambandið entist í mánuð

Tom Clare og Samie Eilishi þegar allt lék í lyndi.
Tom Clare og Samie Eilishi þegar allt lék í lyndi. Skjáskot/Instagram

Love Island-stjörnurnar Samie Elishi og Tom Clare eru hætt saman, einungis mánuði eftir að hafa endað í þriðja sæti í raunveruleikaþáttunum vinsælu.

Fyrrverandi parið kennir vegalengdinni á milli þeirra og störfum þeirra um sambandsslitin, en Elishi býr í Essex í suðausturhluta Englands og Clare í Barnsley í suðurhluta York-skíris, sem er töluvert norðar. 

Að sögn heimildarmanns The Sun er þó enn mikil ást og virðing á milli þeirra, en sambandið hafi bara ekki gengið upp. 

Clare hafði áður sagt að hann væri tilbúinn til þess að flytja hvert sem er fyrir Elishi og að þau hefðu heimsótt hvort annað nokkrum sinnum eftir að þau komu aftur til Bretlands. Þau hafi þó ekki viljað drífa sig í að flytja inn saman og allt tæki þetta sinn tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir