Nick Carter, liðsmaður sveitarinnar Backstreet Boys, þakkar Íslandi kærlega fyrir magnaða sýningu. Tónleikar Backstreet Boys fóru fram í troðfullri Laugardalshöll í gær.
„Höldum áfram með sýninguna! Takk Ísland fyrir magnaða tónleika,“ skrifar Carter við myndband af tónleikunum.
Það fór sennilega ekki framhjá notendum samfélagsmiðla að hljómsveitin tróð upp í gær. Ljósmyndari mbl.is var á svæðinu og fangaði stemninguna.