Guðmundur Felix Grétarsson þurfti að fara í aðra aðgerð vegna sýkingar sem myndast hefur í handlegg hans. Frá þessu greinir hann í myndskeiði á Facebook.
Tveir handleggir voru græddir á Guðmund Felix fyrir rúmlega tveimur árum síðan.
Á fimmtudag greindi hann frá því að höfnunareinkenni væru farin að gera vart við sig. Voru einkennin meðhöndluð með margföldum skammti af sterum en mögulegt er að Guðmundur missi handleggina.
Vegna sýkingar og bólgu í olnboga fór hann í aðgerð á laugardagskvöld til þess að losa um vökva sem þar hafði myndast svo að sýklalyf kæmust óhindruð um handlegginn.
Í gærkvöldi kom læknirinn svo og skipti um umbúðir og hreinsaði sárin en sama kvöld fór Guðmundur Felix að fá hita þrátt fyrir að vera á sýklalyfjum.
„Í morgun var ákveðið að ég skyldi fara í aðra aðgerð, handleggurinn var opnaður hærra uppi og skurðurinn er opinn frá öxl að hendi. Svæðið var þrifið og þvegið. Ég er enn á sýklalyfjum og nú þurfum við bara að bíða og sjá. Ég er ekki með hita og mér líður ágætlega. Handleggurinn er enn bólginn en það er ekki jafn sársaukafullt. Við munum vita hvernig þetta fer á næstu dögum,“ segir Guðmundur Felix.
Hann sé þakklátur fyrir allan stuðninginn en hann geti því miður ekki svarað skilaboðum þar sem hann sé ekki í ástandi til þess. Hann geti varla notað fingurna.
„Takk fyrir allan stuðninginn sem þið hafið sýnt mér. Ég mun halda ykkur upplýstum á komandi dögum um hvernig þetta fer,“ sagði Guðmundur Felix að lokum.