Haraldur Þorleifsson, frumkvöðull og aðgerðarsinni, fagnar því í dag að hafa verið allsgáður í tólf ár. Haraldur segir frá á Twitter.
„Ég var búinn að misnota áfengi og fíkniefni daglega á þeim tímapunkti. Eftir að ég hætti þá breyttist líf mitt. Ég kvæntist, eignaðist börn, við skoðuðum heiminn og ferill minn hófst fyrir alvöru,“ skrifar Haraldur í einlægri færslu.
Hann segir heiminn hafa orðið að bjartari stað, öll sambönd hans við annað fólk hafi orðið betri og hann hafi vaxið sem manneskja. Með því að verða edrú hafi hann geta tekist á við „djöflana“.
„Lífið er enn erfitt, en flesta daga er það ekki jafn erfitt og það var,“ skrifar Haraldur.
Haraldur opnaði á dögunum kaffihúsið og veitingastaðinn Önnu Jónu og ræddi við Sunnudagsblað Morgunblaðsins um staðinn.
12 years ago today I stopped drinking.
— Halli (@iamharaldur) May 1, 2023
I had been drinking and abusing drugs daily up until that point.
After I stopped my entire life changed. I got married, had children, we explored the world, my career took off.
My demons stayed but being sober helped me talk to them.