Katherine Schwarzenegger, eiginkona stórleikarans Chris Pratt, heldur mikið upp á eina af eldri myndum eiginmanns síns og ef til vill ekki eitt af hans þekktari hlutverkum.
Á frumsýningu kvikmyndarinnar The Guardians of the Galaxy Vol. 3 upplýsti Pratt að kvikmyndaáhugi eiginkonu sinnar næði ekki yfir í Marvel- né Jurassic Park-heiminn.
„Uppáhaldsmyndin hennar er Bride Wars,“ sagði Pratt við blaðamann frá tímaritinu People þegar hann gekk rauða dregilinn ásamt eiginkonu sinni, meðleikurum og teymi nýjustu Marvel-myndarinnar.
„Katherine er mikill aðdáandi Bride Wars og er það mynd sem hún kýs að kalla „alvöru kvikmyndagerð“.“
Rómantíska gamanmyndin kom út árið 2009 og skartaði Kate Hudson og Anne Hathaway í aðalhlutverkum. Í myndinni leika þær tvær brúðir og bestu vinkonur sem lenda í ósætti þegar brúðkaup þeirra beggja eru óvart bókuð á sama degi og á sama stað.
Pratt lék unnusta persónu Hathaway í myndinni. „Ég held að þetta gæti verið eina myndin sem ég hef leikið í sem hún hefur séð,“ gantaðist leikarinn.
Pratt og Schwarzengger byrjuðu saman árið 2018 og giftu sig ári síðar. Þau eiga saman tvær dætur, Lylu, tveggja ára og Eloise, 11 mánaða. Leikarinn deilir einnig forræði yfir Jack, tíu ára, sem hann eignaðist með fyrrverandi eiginkonu sinni, leikkonunni Önnu Faris.