Karl III. Bretakonungur hefur nú verið krýndur við hátíðlega athöfn í Westminster Abbey en krýningin var sú fyrsta í 70 ár í Bretlandi.
Um 2.300 gestir voru viðstaddir athöfnina en enn fleiri söfnuðust saman við Buckingam-höll og Westminster Abbey til að vera vitni að athöfninni og umgjörðinni í kringum hana. Töluvert fleiri tóku sig til á Twitter og tjáðu sínar skoðanir á athöfninni þar og voru Íslendingar engin undantekning.
Fjölmargir Íslendingar gerðu gys af krýningarathöfninni en hér fyrir neðan er samantekt af því helsta sem fór fram á Twitter.
Þegar maður fær jólagjöf sem maður veit ekkert hvað maður á að gera við #krýningin pic.twitter.com/XNeFBDeuHZ
— María Björk (@baragrin) May 6, 2023
Mér líður smá eins og Karli finnist þetta show jafn asnalegt og mér #krýningin
— Kristrún Emilía (@KristrunEmilia) May 6, 2023
Ríkiseplið. Akkúrat. Allt eðlilegt hér.
— HilPARODYdur ♀ 🇵🇸 🇺🇦 🏳️⚧️ (@hillldur) May 6, 2023
Kom ekkert til greina að klára þessa krýningu bara með rafrænum skilríkjum?
— Bragi Valdimar (@BragiValdimar) May 6, 2023
Árshátíð geimverusambandsins byrjar bara vel. pic.twitter.com/orBODKMemr
— Bragi Valdimar (@BragiValdimar) May 6, 2023
Þessi krýningarathöfn er eins og lengsti Monty Python skets heims
— Guðmundur Jörundsson (@gudmundur_jor) May 6, 2023
Eina sem ég vil vita er hvað þessi nýi konungur tekur í hnébeygju. Getur ekki verið king ef þú átt ekki þungt max.
— Áslaug Birna (@slaug20) May 6, 2023
Eins og áður hefur verið greint frá voru Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Eliza Reid forsetafrú viðstödd krýninguna í Lundúnum.
My wife @elizajreid and I are honoured to be in London for the Coronation of Their Excellencies King Charles III and Queen Camilla at Westminster Abbey. Iceland and the UK are long-standing friends, and we are delighted to take part in this historic occasion with the @RoyalFamily pic.twitter.com/sJagb60Lm6
— President of Iceland (@PresidentISL) May 6, 2023