Eurovision-sigurvegari á Selfossi á úrslitakvöldinu

Emmelie De Forest sigraði í Eurovision árið 2013.
Emmelie De Forest sigraði í Eurovision árið 2013. AFP/John Macdougall

Danska söngkonan Emmelie de Forest, sigurvegari Eurovision árið 2013, verður heiðursgestur í Eurovision-teiti á Sviðinu á Selfossi laugardaginn 13. maí.

Úrslitakvöld Eurovision verður haldið á laugardag og verður keppnin sýnd á nokkrum risaskjám á tónleikastaðnum Sviðinu, sem opnaði í haust í nýja miðbænum.

Hægt verður að bóka borð og býðst fólki að koma yfir daginn og skreyta þau. Flottasta borðið hlýtur flöskuborð í verðlaun, að því er segir í tilkynningu.

Euroborgarar í boði

Emmelie De Forest sigraði í keppninni árið 2013 með laginu Only Teardrops og mun hún taka lagið á Sviðinu eftir að útsendingu lýkur. Plötusnúðurinn Dj Gassi King spilar síðan Eurovision-lög fram á nótt.

Partýið á Selfossi hefst með grillveislu í nýja miðbænum klukkan sex þar sem boðið verður upp á svokallaða Euroborgara til klukkan átta. Einar Bárðarsson verður veislustjóri kvöldsins.

Þá verður getraunakeppni fyrir gesti með vinningum og gleðistund á barnum á meðan keppni stendur. Hægt er að kaupa miða á tix.is á 1.986 krónur.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Tove Alsterdal
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Tove Alsterdal
5
Torill Thorup