200 úkraínskar konur mættu í Eldborg

Kvennakór Suðurnesja flutti lögin Hushabye Mountain og What a Wonderful …
Kvennakór Suðurnesja flutti lögin Hushabye Mountain og What a Wonderful World. Kórinn skartaði friðarhálsmenum í úkraínsku fánalitunum. mbl.is/Freyr

Tvö hundruð úkraínskar konur sem flúðu stríðið í heimalandi sínu til Íslands, voru viðstaddar tónleikana Syngjandi vor, þar sem fjórtán íslenskir kvennakórar stigu á svið í Eldborgarsal Hörpu á laugardaginn. 

Konurnar fengu boðsmiða á tónleikana og var tilgangurinn meðal annars að kynna þær fyrir íslenskum kvennakórum og hvetja þær til að ganga til liðs við þá. Við upphaf tónleikanna var þeim þakkað sérstaklega fyrir að hafa þegið boðið og fjölmennt í Eldborg.

Kyrjurnar fluttu Can´t Help Falling in Love og Fallegur dagur.
Kyrjurnar fluttu Can´t Help Falling in Love og Fallegur dagur. mbl.is/Freyr

Kvennakór Suðurnesja steig á svið með friðarmerki í úkraínsku fánalitunum um hálsinn og söng lagið What A Wonderful World, við góðar undirtektir.

Þá voru tvö lög eftir Bubba Morthens flutt á tónleikunum. Fyrst söng Senjórítukórinn Fjöllin hafa vakað og síðan fluttu Kyrjurnar lagið Fallegur dagur. Á meðal fleiri laga sem fengu að hljóma í Hörpu voru Dýrð í dauðaþögn eftir Ásgeir Trausta og Bohemian Rhapsody.

Kvennakórinn Ymur flutti lagið Söngur Gabríellu.
Kvennakórinn Ymur flutti lagið Söngur Gabríellu. mbl.is/Freyr

Tónleikarnir í Hörpu voru liður í landsmóti Gígjunnar, landssambandi íslenskra kvennakóra, sem var haldið í Reykjavík um helgina af Kvennakór Reykjavíkur.

Kvennakór Ísafjarðar flutti lögin Um vor og Gott að sjá …
Kvennakór Ísafjarðar flutti lögin Um vor og Gott að sjá þig. mbl.is/Freyr

Kórarnir sem sungu inn vorið í Eldborg voru: Héraðsdætur, Kvennakór Vestmannaeyja, Kvennakór Akureyrar, Jórukórinn, Kvennakór Hafnarfjarðar, Kvennakór Ísafjarðar, Kvennakór Suðurnesja, Kvennakórinn Ymur, Kvennakórinn Ljósbrá, Senjórítukórinn, Kyrjurnar, Kvennakórinn Heklurnar, Kvennakór Hornafjarðar og Kvennakór Reykjavíkur.

Kvennakór Reykjavíkur lauk dagskránni með lögunum Tundra og Eldur.
Kvennakór Reykjavíkur lauk dagskránni með lögunum Tundra og Eldur. mbl.is/Freyr
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Tove Alsterdal
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Tove Alsterdal
5
Torill Thorup