Fagnaði sigrinum með fríum tónleikum

Breski tónlistarmaðurinn Ed Sheeran hélt fría tónleika í Hollywood á …
Breski tónlistarmaðurinn Ed Sheeran hélt fría tónleika í Hollywood á dögunum. Samsett mynd

Breski tónlistarmaðurinn Ed Sheeran fagnaði því að hafa í síðustu viku sigrað í höfundarréttarmáli um lagið sitt, Thinking Out Loud, með fríum tónleikum. 

Síðastliðinn sunnudag kom tónlistarmaðurinn aðdáendum sínum í Hollywood verulega á óvart með fríum tónleikum. Sheeran stóð ofan á rauðri StarLine City-rútu og söng fræga smelli á borð við Shape of You og Thinking Out Loud.

Daginn áður hafði Sheeran látið vita af tónleikunum á Instagram þar sem hann deildi staðsetningu og tímasetningu tónleikanna með aðdáendum sínum.

Mikið í húfi fyrir Sheeran

Sheeran var sakaður um lagastuld í lagi sínu Thinking Out Loud, en lagið var talið líkjast laginu Let's Get it On eftir Marvin Gaye og voru það erfingjar Gayes sem lögðu kæruna fram. 

Sheeran sagðist ætla að gefa tónlistarferil sinn upp á bátinn ef hann myndi tapa dómsmálinu, en hann sagði ásakanirnar vera mjög móðgandi þar sem hann hefði helgað líf sitt tónlistinni og lagsmíðum. 

Hinn 4. maí síðastliðinn gekk tónlistarmaðurinn hins vegar með bros á vör út úr dómsal í New York-borg þar sem hann hafði betur í dómsmálinu. Kviðdómurinn taldi lagið ekki brjóta gegn höfundarréttarlögum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Tove Alsterdal
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Tove Alsterdal
5
Torill Thorup