Greina frá dánarorsök Ray Liotta

Stórleikarinn Ray Liotta lést hinn 26. maí 2022, 67 ára …
Stórleikarinn Ray Liotta lést hinn 26. maí 2022, 67 ára að aldri. AFP

Bandaríski stórleikarinn Ray Liotta lést 67 ára að aldri hinn 26. maí 2022. Nú hefur verið greint frá dánarorsök Liotta, tæpu ári eftir skyndilegt fráfall hans.

Fram kemur á vef TMZ að leikarinn hafi látist úr bráðri hjartabilun og vökva í lungum, oft kallað lungnabjúgur. Þá er hann einnig sagður hafa þjáðst af æðakölkun, sem er þrenging í slagæðum.

Greint var frá því á síðasta ári að Liotta hefði látist í svefni í Dóminíska lýðveldinu, en hann var staddur þar við tökur á sinni nýjustu kvikmynd, Dangerous Waters. Leikarinn var trúlofaður Jacy Nittolo og átti eina dóttur.

Liotta skaust upp á stjörnuhimininn árið 1990 og var hvað þekktastur fyrir að fara með hlutverk í kvikmyndunum Goodfellas og Field of Dreams.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Tove Alsterdal
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Tove Alsterdal
5
Torill Thorup