Steinunn Björk Bragadóttir
skrifar frá Liverpool
Samband evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) hefur dregið til baka þær breytingar sem gerðar voru á úrslitastund undankvölda Eurovision-söngvakeppninnar.
Breytingarnar voru prufukeyrðar á fyrstu búningaæfingu í morgun.
Um tveimur klukkustundum eftir rennslið sendi EBU frá sér tilkynningu þess efnis að hætt hefði verið við að hafa fyrirkomulagið með þessum hætti.
Fyrirkomulagið verður því hið sama og hefur verið undanfarin ár, en ekki eins og greint var frá fyrir stundu.
Breytingarnar voru á þann veg að í stað þess að flytjendur sætu með öðrum úr hópi sínum í græna herberginu myndu þeir núna standa upp á sviði þegar úrslit eru tilkynnt.
Nú er ljóst að Diljá og aðrir keppendur sitja með hópum sínum þegar úrslitin verða tilkynnt.
Í tilkynningunni frá EBU segir að eftir að hafa prófað fyrirkomulagið í dag hafi framleiðsluteymið ákveðið að hætta við þær. Áhorfendur eigi engu að síður von á spennandi nýjungum í keppninni.