„Hún hreyfir sig rosalega vel, fer um allt sviðið í fimleikastökkum – raddstyrkurinn og líkamlegi styrkurinn eru blanda sem hreyfir við manni og er eins og ekkert annað í Eurovision-söngvakeppninni í ár,“ segir í bloggi á Eurovision.tv um atriði Diljár Pétursdóttur, fulltrúa Íslands í Eurovision.
Fjallað var um Diljá á blogginu í gær.
Fimleikhæfileikar Diljár hafa svo sannarlega vakið athygli hér í Liverpool, en hún heillaði aðdáendur upp úr skónum þegar hún dansaði, standandi á höndum, á turkísbláa dreglinum.