Fyrra undankvöld Eurovison-söngvakeppninnar er í kvöld. Morgunblaðið tók saman allt sem þú þarft að vita um keppendur kvöldsins og má hér lesa um fimm fyrstu atriðin.
Alessandra er hálfnorsk og hálfítölsk og ólst að mestu leyti upp á Ítalíu. Hún fluttist fyrst til Noregs árið 2021 en hefur þó alla sína ævi haft mikla tengingu við norskar rætur sínar.
Alessandra tók þátt í norsku útgáfunni af The Voice árið 2022 en féll úr keppni í fyrsta þættinum sem var sendur út í beinni útsendingu.
Lagið er með yfir 25 milljónir spilana og hefur öðlast miklar vinsældir á samfélagsmiðlinum TikTok. Er þetta mikið afrek þar sem lagið er í raun það fyrsta sem Alessandra gefur út.
Byrjuðu tónlistarferil sinn með því að afla sér fjár með því að skemmta vegfarendum á götum úti á Möltu.
Sveitin fær innblástur sinn frá hljómsveitum á borð við Bítlana og The Beach Boys. Það má því með sanni segja að þeir séu á heimavelli í Bítlaborginni sjálfri.
Luke Black er listamannsnafn söngvarans og lagahöfundarins Luka Ivanovic. Fyrri hluti nafnsins er enska útgáfan af nafni hans Luka. Black er vísun í það þegar hann lýsti sjálfur, 14 ára gamall, yfir 40 daga sorgartímabili vegna dauða serbnesku tónlistarsenunnar.
Hann ákvað að taka þátt í undankeppninni í Serbíu í gríni í fyrstu en endaði á að vinna keppnina með flesta samanlögð stig, eftir að hafa lent í öðru sæti hjá bæði áhorfendum og dómnefndum.
Síðastliðin ár hefur hann búið í Lundúnum, þar sem hann hefur stundað nám í tónlistarframleiðslu og starfar nú sem grafískur hönnuður hjá útgáfufyrirtæki.
Lagið er eins konar rokkuð vögguvísa en titill lagsins þýðir „vagga“. Hann gæti þó einnig samsvarað „svona, svona“ sem margir íslenskir foreldrar segja við börn sín þegar verið er að hugga þau.
Hljómsveitin Sudden Lights var stofnuð í höfuðborg Lettlands, Riga, árið 2012 og gaf hún út sína fyrstu plötu árið 2017. Árið 2018 lenti sveitin í öðru sæti í Eurovision-forkeppni þeirra Letta.
Listamannsnafn hennar er samsetning á gælunafninu Mimi, sem algengt er að ömmur noti yfir ömmudætur sínar, og ensku útgáfunni af ketti, því hún er mikil kattamanneskja og á kött sem heitir Brownie.
Mimicat samdi lag sitt sjálf og segist hafa gert það á einungis fimm mínútum fyrir um tíu árum, þegar hún sat heima að bíða eftir gesti.
Titil lagsins er hægt að þýða sem „ó hjarta mitt“ og fjallar lagið um ástarsorg og örvæntingu.