Finninn vinsælli en Loreen

Käärijä hafði betur en Loreen í kosningu eftir búningarennsli í …
Käärijä hafði betur en Loreen í kosningu eftir búningarennsli í gær. Samsett mynd

Hinn finnski Käärijä var stigahæstur í kosningu á meðal þeirra sem fengu að sjá fyrsta búningarennsli Eurovision-söngvakeppnninnar í Liverpool í gær. Skákaði hann þar Loreen frá Svíþjóð, en hún fékk næstflest atkvæði í kosningunni.

Kosningin var gerð á meðal þeirra sem fengu að sjá fyrsta rennslið í gær. Það er áhugamannabloggið ESCXTRA.com sem framkvæmdi kosninguna en 2.480 atkvæði voru greidd.

Käärijä hlaut 1.035 atkvæði eða ríflega 41%. Loreen hlaut langtum færri atkvæði eða 381 atkvæði, ríflega 15%. 

Fyrra undankvöld Eurovision fer fram í Liverpool í kvöld og hefst útsending klukkan 19. 

Sams konar kosning verður á morgun þegar Diljá Pétursdóttir fulltrúi Íslands stígur á stóra sviðið. 

Tafla/ESCXTRA.com
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar