Áhorfendur Eurovision í kvöld ráku kannsku augun í það að hinn finnski Käärijä kom út úr sánuparísarhjóli í kynningarinnslaginu áður en hann steig á sviðið í Liverpool í kvöld.
Blaðamaður mbl.is fór á stúfana til að kanna hvort nú væri verið að plata okkur, en það er svo sannarlega ekki verið að plata. Í miðborg Helsinki er að finna parísarhjól með sánum á hreyfingu, Sky Sauna.
Hvað er betra en sána? Finnar eru með svarið: Sána í parísarhjóli.