Fyrra undankvöld Eurovison-söngvakeppninnar er í kvöld. Morgunblaðið tók saman allt sem þú þarft að vita um keppendur kvöldsins, en hér má sjá aðra samantekina af þremur sem birtast í dag.
Sveitin aflaði sér áður fjár með því að skemmta gestum og gangandi á strætum Dyflinnar. Á seinni árum hefur hún hins vegar séð um upphitun fyrir tónlistarfólk á borð við Niall Horan, Lewis Capaldi og Zöru Larson.
Titill og texti lagsins fagnar fjölbreytileikanum og minnir okkur á að við búum öll undir sömu sólinni þegar upp er staðið. Skemmtileg staðreynd er sú að titill lagsins er það sá sami og slagorð Eurovision-keppninar árið 2013.
Þótt ekki sé leyfilegt að vera með pólitískan áróður í Eurovision er króatíska lagið í raun pólitísk ádeila á stríðið í Úkraínu. Króatarnir fara þó framhjá öllum beinum vísunum í það, en glöggir hlustendur geta tekið eftir vísunum í forseta Rússlands og Hvíta-Rússlands.
Hljómsveitin var upprunalega stofnuð árið 1986 sem dúett undir nafninu Let 2, en breyttist fljótlega í Let 3 þegar nýr meðlimur kom í hljómsveitina.
Sveitin er frá Rijeka í Króatíu, sem er háborg pönksins í Króatíu. Ber hljómsveitin þess merki því hún hefur ávallt verið mjög ögrandi í framkomu. 8 Sviss
Mörg hafa tengt texta lagsins við stríðið í Úkraínu en Remo Forrer segir að það sé ekki tilfellið. Lagið hafi í raun verið samið fyrir tveimur árum og fjallar um hversu hræðileg stríð yfirhöfuð eru.
Þótt Remo Forrer sé einungis 21 árs þá er hann reynslumikill í tónlist. Auk þess að syngja spilar hann á píanó og harmóníku.
Noa er þekkt söng- og leikkona í heimalandinu og hefur einnig verið dómari í Israel‘s Got Talent.
Hún er margverðlaunuð og hlaut meðal annars verðlaun sem besta ísraelska atriðið á evrópsku MTV-verðlaununum.
Var með þeim fyrstu þátttakendum sem tilkynntir voru en Ísraelar tillkynntu átta mánuðum fyrir keppni að Noa hefði verið valin. Lagið sjálft var hins vegar með þeim síðustu til að vera tilkynnt.
Pasha er enginn nýgræðingur í Eurovision. Hann tók þátt fyrir hönd Moldóvu árið 2012 og samdi framlag Moldóva árið eftir.
Texti lagsins er vísun í rúmenskar og moldóvskar þjóðsögur og er fullur af myndlíkingum, þjóðlegum táknum og náttúrutengingum.
Bakraddasöngkonurnar bera horn, sem er vísun í móður skógarins sem verndar hið villta líf skógarins.