Framleiðslu á spennuþáttunum vinsælu S.W.A.T. hefur verið aflýst, af sjónvarpsstöðinni CBS. Þættirnir munu þar af leiðandi ekki snúa aftur með seríu sjö í haust eins og margir spenntir aðdáendur héldu.
Bandaríski leikarinn Shemar Moore, sem er þekktur fyrir leik sinn sem Daniel „Hondo“ Harrelson í þáttunum, deildi myndbandi með fylgjendum sínum á Instagram þar sem hann virtist mjög skúffaður og skildi hvorki upp né niður í þessari ákvörðun.
Sjötta þáttaröðin er í gangi í Bandaríkjunum um þessar mundir og er að meðaltali með 6,8 milljónir áhorfenda í hverri viku og eru því margir ekki að skilja þessa ákvörðun CBS og þá sérstaklega Moore sem sagði: „Að aflýsa þættinum eru f**** mistök.“
Tæplega 100.000 manns hafa líkað við færslu Moore og mörg hundruð hafa skrifað undir, honum og þættinum til stuðnings.