Úkraína í forgrunni í Liverpool

„Ég kom fyrst til Bretlands fyrir um sex mánuðum í gegnum Homes for Ukraine-verkefnið líkt og þúsundir annarra Úkraínumanna,“ segir Tanya, ung kona frá austurhluta Úkraínu. Hún vinnur nú sem sjálfboðaliði fyrir verkefnið sem kom henni í öruggt skjól á síðasta ári.

Tanya og félagar hennar í Homes for Ukraine vinna sem sjálfboðaliðar á Eurovision-söngvakeppninni í ár, en Úkraína sigraði í keppninni á síðasta ári. Bretland heldur keppnina fyrir Úkraínumenn vegna innrásar Rússa.

Eurovision nýtur vinsælda meðal Úkraínumanna

Í Eurovision-þorpinu við höfnina í Liverpool er lítið Úkraínuþorp þar sem gestir geta kynnt sér úkraínska menningu, bókmenntir, list, tísku og snætt úkraínskan mat. Yfir 160 þúsund Úkraínumenn hafa leitað skjóls í Bretlandi frá upphafi stríðsins og er enn unnið að því að koma fleiri flóttamönnum til Bretlands.

Tanya segir Eurovision gríðarlega vinsælt í Úkraínu og því hafi margir Úkraínumenn ferðast hvaðanæva af Bretlandi til að fylgjast með keppninni og upplifa stemninguna í Liverpool.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar