Mark Zuckerberg stofnandi Facebook hefur bæst í hóp frægra einstaklinga sem leggja stund á brasilíska gólfglímu (e. Brazilian jiu-jitsu).
Zuckerberg birti færslur á Instagram og Facebook þar sem hann tjáði fylgjendum að hann hefði unnið gull á sínu fyrsta móti í glímunni um helgina. Hann tók ekki fram hvaða mót var um að ræða eða hvar það var haldið.
The Guardian tók saman lista yfir aðra þekkta einstaklinga sem hafa lagt stund á íþróttina en þar á meðal eru leikararnir Tom Hardy, Henry Cavill og Russell Brand.
One of Mark Zuckerberg's BJJ matches pic.twitter.com/CnNdlhXtJl
— Bloody Elbow (@BloodyElbow) May 8, 2023