Sonja Sif Þórólfsdóttir
skrifar frá Liverpool
Eurovision-kempan Daði Freyr Pétursson troðfyllti tónleikastaðinn Jimmy's í Liverpool í kvöld með tónleikum sínum JúróDaði. Miðar seldust upp á tónleikana á örfáum mínútum.
Röðin var löng skömmu áður en Jimmy's var opnað eins og blaðamaður komst að þegar hann mætti á staðinn.
Hljómsveitin H.U.M.A.N hitaði upp fyrir Daða sem var þó varla þörf á því Daði opnaði á rólegu nótunum. Síðan tók hann hvern slagarann á fætur öðrum á borð við All Out Of Luck, Is It True og Power.
Daði Freyr kemur fram á úrslitakvöldi Eurovision í Liverpool á laugardag.