Seinni undankeppni Eurovision-söngvakeppninnar fer fram í Liverpool í kvöld og stígur Diljá Pétursdóttir fulltrúi Íslands þá á svið. Morgunblaðið tók saman allt sem þú þarft að vita um keppendur kvöldsins, en finna má umfjöllun um fyrstu 10 lögin í fyrri tveimur fréttum.
Iru – Echo
Iru er enginn nýgræðingur þegar kemur að Eurovision-keppninni en hún sigraði í Junior Eurovision aðeins 11 ára gömul ásamt hljómsveit sinni Candy. Sú keppni er barnaútgáfan af Eurovision-keppninni sjálfri, en Ísland hefur hingað til ekki tekið þátt í henni.
Texti lagsins fjallar um ástina og það að hlusta á sína innri rödd, sem er bergmálið sem titill lagsins vitnar til.
Takist Georgíu að sigra í ár verður það í fyrsta skipti sem sigurvegari úr Junior Eurovision vinnur Eurovision-söngvakeppnina sjálfa.
Piqued Jacks – Like an Animal
Fulltrúi San Marínó í ár er ítölsk rokkhljómsveit sem á rætur að rekja til Toskana-héraðs. Hjómsveitin var stofnuð árið 2006 og hefur gefið út fjórar breiðskífur á ferlinum.
Þetta er í fjórtánda sinn sem San Marínó er með, en fyrsti keppandi þeirra steig á svið árið 2008. Árin 2009 og 2010 voru ekki til peningar til að taka þátt í Eurovision í San Marínó, en San Marínó hefur sent keppanda frá 2011.
Smáríkinu hefur aðeins þrisvar tekist að komast áfram á úrslitakvöld Eurovision og er 19. sætið þeirra besti árangur.
Teya & Salena – Who The Hell Is Edgar?
Teya og Salena hittust fyrst þegar þær tóku þátt í austurrískri hæfileikakeppni og náðu vel saman í gegnum ást sína á Eurovision-keppninni. Báðar tvær hafa tekið þátt í forkeppnum Eurovision í Austurríki en voru svo valdar af austurríska sjónvarpinu til að flytja austurríska framlagið í ár.
Texti lagsins er ádeila á stöðu kvenna í tónlistarheiminum sem fá oft ekki næga viðurkenningu fyrir störf sín. Edgar Allan Poe er í þessu samhengi notaður sem myndlíking á það að skrifa undir dulnefni, nokkuð sem margar konur hafa þurft að gera í gegnum tíðina til að fá verk sín gefin út.
Albina & Familja Kelmendi – Duje
Albanska atriðið er sannkallað fjölskyldusamstarf, því Albina og Kelmendi-fjölskyldan eru í raun fjölskylda. Albina stígur á svið með foreldrum sínum, Albönu og Bujar, og systkinum, Albin, Vesu og Sidorelu.
Albina sjálf er reynd söngkona í heimalandinu og kom fyrst fram á sjónarsviðið aðeins 16 ára þegar hún tók þátt í albönsku útgáfunni af The Voice.
Monika Lynkite – Stay
Monika Linkyte er ekki ókunnug Eurovision-sviðinu þar sem hún tók einnig þátt fyrir hönd Litáens í keppninni árið 2015. Þá söng hún dúett með Vaidas Baumila en er núna í forgrunni, með breskar bakraddir sér til stuðnings.
Að hennar sögn ákvað hún að senda lag inn í litáísku forkeppnina eftir barkvöld í Lundúnum, þar sem hún hitti eina af bakraddasöngkonum sínum fyrir tilviljun. Það sem var í upphafi létt spjall undir áhrifum er nú orðið að framlagi Litáa í Eurovision.
Í viðlaginu syngur hún frasann „ciuto tuto“ sem á uppruna að rekja til litáískrar þjóðsagnahefðar og er oft notaður í litáískum þjóðdönsum sem einhvers konar töfraþula.
Voyager – Promise
Hljómsveitin Voyager hefur starfað síðan 1999 og farið í nokkrar tónleikaferðir um heiminn. Sveitin hefur gert nokkrar tilraunir til að komast í Eurovision sem fulltrúi Ástrala og komst næst því í fyrra.
Þá lenti sveitin í öðru sæti, einungis þremur stigum á eftir sigurvegaranum Sheldon Riley. Meðlimir sveitarinnar eru miklir Eurovision-aðdáendur og uppáhaldslag aðalsöngvarans Dannys er hvorki meira né minna en okkar eigið „Congratulations“ sem Silvía Nótt flutti svo eftirminnilega í Aþenu árið 2006.