Daði Freyr og Árný Fjóla buðu gestum og gangandi upp á rjómaís í miðbæ Liverpool í dag. Tilefnið var ekki eingöngu Eurovision-keppni vikunnar heldur var hann einnig að tilkynna nýtt tónleikaferðalag.
Eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan var mikil stemmning á Willemson Square á meðan Daði heilsaði aðdáendum og Árný skenkti ís.
Karítas, Bjarki og Sigurður komu frá Íslandi til að fylgjast með Eurovision-keppninni í ár.
mbl.is/Steinunn Björk
Hafrún og Óðinn litli eru búsett hér í Bretlandi og komu til Liverpool í tilefni Eurovision-keppninnar.
mbl.is/Steinunn Björk
Daði situr fyrir með aðdáendum.
mbl.is/Steinunn Björk
Daði var stoltur af ísbílnum.
mbl.is/Steinunn Björk
Árný tók sig vel út á meðan hún skenkti blaðamanni ís.
mbl.is/Steinunn Björk
Röðin í ísbílinn var nokkuð löng.
mbl.is/Steinunn Björk
Breskir aðdáendur voru ánægðir með framtakið.
mbl.is/Steinunn Björk