Seinni undankeppni Eurovision-söngvakeppninnar fer fram í Liverpool í kvöld og stígur Diljá Pétursdóttir fulltrúi Íslands þá á svið. Morgunblaðið tók saman allt sem þú þarft að vita um keppendur kvöldsins.
Reiley – Breaking My Heart
Reiley, sem heitir í raun Rani Petersen, er upprunalega frá Færeyjum og er þetta í fyrsta skiptið sem Færeyingur stígur á stóra sviðið fyrir hönd Dana í Eurovision.
Reiley hefur vakið mikla athygli á Tiktok, ásamt því að vera vinsæll í Suður-Kóreu. Þar hefur hann flutt og tekið upp tónlist með nokkrum af stærstu tónlistarmönnum K-pop-senunnar, en K-pop er suður-kóresk tónlistarstefna sem hefur öðlast vinsældir um allan heim.
Mikil umræða hefur verið um hvort Reiley noti svokallað „autotune“, þar sem röddin er hreinsuð til við upptöku til þess að hún hljómi betur en hún í raun gerir. Það er víst helber misskilningur, en Reiley notast við svokallaðan „vocoder“ sem breytir í raun röddinni eins og hún leggur sig. Notkun á þessu hefur verið umdeild í Eurovision-heiminum, en hún var fyrst leyfð árið 2017.
Brunette – Future Lover
Brunette er þekkt söngkona í heimalandinu en hún er einnig meðlimur í armenska stúlknabandinu En Eghjiknery, sem gæti útlagst á íslensku sem „Þær stelpurnar“.
Texti lagsins fjallar um elskhuga sem Brunette hefur enn ekki hitt. Stærstur hluti lagsins er sunginn á ensku en síðasti hlutinn er sunginn á armensku, sem er í fyrsta sinn síðan 2018 sem armenska heyrist í Eurovision. Ef lagið kemst áfram verður það í fyrsta sinn síðan 2009 sem armenska heyrist í úrslitum Eurovision.
Theodor Andrei – D.G.T. (Off and On)
Þótt Theodor sé einungis 18 ára gamall á hann mikla reynslu að baki í tónlist og leiklist, þar á meðal í talsetningum. Einnig hefur hann unnið til ýmissa verðlauna í heimalandinu.
Titill lagsins er í raun leikur með orð. Á rúmensku hljómar stafsetningin D.G.T. eins og rúmenska orðið yfir fingur, en talað er um í Rúmeníu að leika á einhvern með fingrunum þegar verið er að spila með einhvern.
Alika – Bridges
Alika vakti fyrst athygli í heimalandinu í eistnesku útgáfunni af Idol. Ásamt því að vera söngkona er hún breikdansari, rappari og stundar hnefaleika.
Alika er með píanó á sviðinu, sem er hvorki meira né minna en sjálfspilandi. Er þetta í fyrsta sinn sem sjálfspilandi píanó er notað sem leikmunur í Eurovision.
Alika semur lagið með Wouter Hardy, sem samdi sigurlag Hollendinga, „Arcade“, árið 2019 með Duncan Laurence.
Gustaph – Because of You
Gustaph er þaulreyndur í bransanum en tónlistarferill hans spannar yfir tuttugu ár. Hann býr líka yfir Eurovision-reynslu, en hann fór út sem bakrödd í framlagi Belga árin 2018 og 2021.
Gustaph er mikill aðdáandi hatta og segist eiga um 50 hatta heima hjá sér. Að sögn Gustaphs er eiginmaður hans ekki jafn spenntur yfir hattasafninu og finnst mikið maus að þurfa að koma öllum höttunum fyrir inni á heimilinu.