Sonja Sif Þórólfsdóttir
skrifar frá Liverpool
Snúningspallurinn sem Diljá Pétursdóttir, fulltrúi Íslands í Eurovision-söngvakeppninni, notar í atriði sínu virðist hafa virkað vel á síðasta rennsli fyrir keppni.
Rúv greindi frá því að pallurinn hefði virkað illa í gær og á seinna rennsli gærdagsins hefði hann bara ekki virkað.
Diljá lauk rétt í þessu við flutning sinn á laginu og að því er blaðamenn mbl.is í Liverpool komast næst virkaði allt. Mikill kraftur var í Diljá og virkar hún meira en tilbúin fyrir kvöldið.