Stóra stundin runnin upp í Liverpool

Stóra stundin er runnin upp hjá Diljá.
Stóra stundin er runnin upp hjá Diljá. EBU/Corinne Cumming

​Seinni undankeppni Eurovision-söngva­keppninnar fer fram í Liverpool í kvöld og stígur Diljá Pétursdóttir fulltrúi Íslands á svið í kvöld. Morgunblaðið tók saman allt sem þú þarft að vita um keppendur kvöldsins og má hér sjá lög 6-10 í kvöld. Lesa má um fyrstu atriði kvöldsins í meðfylgjandi frétt.

6. Kýpur

Andrew Lambrou – Break A Broken Heart

Andrew Lambrou er fæddur og uppalinn í Ástralíu en heimaland foreldra hans er Kýpur. Hann er stoltur af kýpverskum rótum sínum og talar grísku reiprennandi.

Hann tók þátt í forkeppni Ástralíu í fyrra en varð að lúta í lægra haldi fyrir Sheldon Riley.

7. Ísland

Diljá – Power

Diljá þarf nú vart að kynna fyrir landanum, hún er að sjálfsögðu fulltrúi Íslands í keppninni í ár.

Diljá kom fyrst fram á sjónarsviðið í Ísland Got Talent árið 2015, þá bara 14 ára gömul. Hún söng sig svo inn í hug og hjarta Íslendinga í Söngvakeppninni fyrr á þessu ári.

Diljá stundar nám í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands, en fjölskylda hennar rekur einmitt sjúkraþjálfunarstöð. Hæg eru því heimatökin í þeim efnum.

8. Grikkland

Victor Vernicos – What They Say

Victor Vernicos er yngsti keppandinn í ár, aðeins 16 ára gamall. Auk þess er hann yngsti keppandinn í sögu Grikklands. Hann fæddist í október árið 2006, svo hann var ekki fæddur þegar Grikkland landaði sínum eina sigri í keppninni hingað til árið 2005.

Hann er hálfgrískur og hálfdanskur, en faðir hans er Dani. Victor er þó fæddur og uppalinn í Grikklandi en heldur mikið upp á danskar rætur sínar.

Texti lagsins fjallar um fyrsta skiptið sem hann upplifði kvíðakast á ævi sinni, einungis 13 ára gamall. Hálfu ári seinna hafði hann samið lagið, þá orðinn 14 ára.

9. Pólland

Blanka – Solo

Blanka er pólsk-búlgörsk söngkona sem vissi frá 14 ára aldri að hún vildi verða poppstjarna. Hún fluttist fljótlega eftir það til Bandaríkjanna ásamt móður sinni og bjó þar næstu fjögur árin, að mestu leyti í Los Angeles og New York.

Þegar Blanka er ekki á fullu að sinna tónlistarferli sínum starfar hún sem fyrirsæta. Tók hún þátt í pólska raunveruleikaþættinum Top Model árið 2021, þar sem hún keppti um að verða næsta ofurfyrirsæta Póllands.

10. Slóvenía

Joker Out – Carpe Diem

Hljómsveitin Joker Out var valin innbyrðis af slóvenska sjónvarpinu til að flytja framlag Slóvena í ár. Hljómsveitin er nokkuð vinsæl í heimalandinu, ásamt því að vera vinsæl á Balkanskaganum.

Strákarnir í Joker Out eru óhræddir við að klæðast litríkum fatnaði sem brýtur kynjatvíhyggjuna, ásamt því að bera augljós sérkenni tískunnar frá diskótímabili áttunda áratugar síðustu aldar.

Þótt titill lagsins sé á latínu er lagið sjálft sungið á slóvensku. Fannst sveitinni mikilvægt að halda uppi heiðri slóvenskrar tungu í keppninni. Lagið fjallar um að það skiptir ekki máli hvert lífið leiðir þig, tónlist og dans er alltaf rétta svarið. Eins og titillinn segir: Carpe Diem eða gríptu gæsina.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar