Eurovision-söngvakeppnin verður haldin í Úkraínu, um leið og landið hefur sigrað stríðið gegn Rússum, að sögn sigurvegara síðasta árs.
„Að sjálfsögðu vildum við óska þess að keppnin væri haldin í Úkraínu, en það er því miður enn ómögulegt“ sagði Tymofii Muzychuk.
Muzychuk er liðsmaður sveitarinnar Kalush Orchestra sem sigraði í fyrra og mun hljómsveitin stíga á svið í Liverpool um helgina samkvæmt umfjöllun Guardian, en þegar hafa þeir troðið upp í Eurovision-þorpinu.
Úkraína sigraði keppnina á síðasta ári en Bretland heldur keppnina fyrir þeirra hönd, vegna innrásar Rússa, og fer aðalkeppnin fram á laugardag í Liverpool.
Muzychuk kvaðst ævinlega þakklátur Bretum fyrir að taka að sér að halda keppnina. Hann sagðist ekki efast um að keppnin innihéldi ýmsar tilvísanir til úkraínskrar menningar.
Lag Kalush Orchestra, Stefania, sló öll met í fyrra en það er fyrsta lag sem inniheldur rapptexta til að vinna Eurovision, og hlaut flest atkvæði í sögu keppninnar.
Hljómsveitin seldi sigurbikarinn fyrir 900 þúsund Bandaríkjadali, eða um 121 milljón króna, sem hún gaf úkraínska hernum.